4102
 hafa skráð sig
31164
 hafa heimsótt þessa síðu
5.000 kr.
10.000 kr.
50.000 kr.
100.000 kr.
1.000.000 kr.
Meira
  • Bónus
  • Hagkaup
  • 10-11
  • Útilíf
  • Zara
  • Debenhams
  • Topshop
  • Coast
  • Evans
  • Dorothy Perkins
  • Oasis
  • Karen Millen
  • All Saints
  • Day
  • Warehouse
  • Aðföng
  • Hýsing
  • Bananar
  • Ferskar kjötvörur
Við erum hópur fjárfesta sem gengur undir nafninu Þjóðarhagur og viljum gera ríkisbankanum Arion (Nýja Kaupþingi Banka) tilboð í Haga, þegar hluturinn fer í
almenna sölu.
Við viljum bjóða öllum sem áhuga hafa að taka þátt í þessu með okkur og tryggja þannig að fyrirtækið fari í hendur almennings. Markmiðið er að gera fyrirtækið að almennings- hlutafélagi og standa vörð um sanngjarna samkeppni.

Þjóðarhagur treystir því frábæra starfsfólki sem vinnur hjá þessum fyrirtækjum til að reka þau áfram og vill gefa því tækifæri til þess að eignast hlut í fyrirtækinu. Við viljum einnig að sem flestir landsmenn eignist fyrirtækið og því er hugmynd okkar að lágmarkshlutur verði á 5.000 kr.

Undir Haga falla mörg þekkt og lífvæn fyrirtæki s.s. Bónus, Hagkaup, 10-11, Útilíf, Zara, Debenhams, Topshop, Coast, Evans, Dorothy Perkins, Oasis, Karen Millen, All Saints, Day og Warehouse. Jafnframt eiga Hagar innkaupafyrirtækin Aðföng, Hýsingu, Banana og Ferskar kjötvörur.

Við erum að kanna áhuga fólks á að vera með í hópi fjárfesta sem nefnist Þjóðarhagur - án allra skuldbindinga.
Ef hluturinn fer í almenna sölu þá höfum við samband við þig og þér gefst þá kostur á því að taka þátt í verkefninu.
Þetta er ekki tilboð um kaup eða sölu á verðbréfum.


Fyrirspurnir á info@thjodarhagur.is